Úff.. það er alveg kreisí að gera hjá mér þessa vikuna!! Samt er ég í fríi í vinnunni fram á föstuadag!! En þar sem yndislegu vinkonur mínar eru í prófum í Snyrtiskólanum verður maður að leyfa að dekra aðeins við sig
Var að koma frá tannsa rétt í þessu, fer til Heiddu kl. 14:00 í förðun og þarf síðan að fara í smá búðarleiðangur eftir það.. sumsé þá er þessi dagur alveg fullur.. svona eiginlega.. nema kvöldið.. og ætli maður fari ekki bara í bíó eða læri því það er svo viðbjóðsleg dagskráin í TV á þriðjudögum!! Alveg glattos!
Klukkan 8 í fyrramálið er ég síðan að fara í líkamsmeðferð hjá Heiddu.. bara stuð

Reyndar ekkert meira að gera þann daginn nema að þrífa! I think.. það kemur samt pottþétt eitthvað meira upp sem ég þarf að gera.
Síðan á fimmtudaginn fer ég í ilmolíunudd til Birgó.. þessar snyrtiskvísur rífa mann bara á fætur í fríinu... jæja, það er svo sem ágætt að einhver geri það.. fyrst að mútta er ekki til staðar

Svo ætlar Guðrún Helga að kalla mig í nudd ef það losnar eitthvað hjá henni
Annars er frekar fátt í fréttum.. nema Agnar Þór litli bróðir er komin með æfingarleyfi á bíl!!! Hann er bara barn! Keyrði til Akureyrar um daginn og alles.. úff ótrúlegt að hugsa til þess að hann fái prófið eftir ár!!! Hann fær örugglega aldrei að snerta Audi-inn hjá mömmu og pabba.. allavega ekki ef mamma fær að ráða

hahahaha enda sæmir pikköppinn AKA Partý-Pétur honum vel. Það er alveg meira en nóg í bili fyrir krakkaorminn.
Man hvað mamma var agalega stressuð þegar ég var í æfingarakstri !! Bara fyndið

Öfunda Agnar ekkert neitt voða mikið að keyra með henni, stefnuljós 10 mín fyrir beygju og síðan má sko alls ekki vera of nálægt kantinum eða miðjunni.. á bara að halda sér akkúrat á miðri akgreininni, annars verður sú gamla alveg óð

Og já, alls ekki keyra yfir 20 liggur við.. múahhaahahah.. það var annað þegar maður fór með pabba, þá var tónlistin stillt í botn og rúntað eins og vindurinn
Svo erum við búin að fá inn á Skuggagarða í ársleigu. Þeir eru í miðbænum.. erum svona að gera upp við okkur hvort við eigum að vera þar eða á Eggertsgötunni. Íbúðirnar eru örlítið stærri í Skuggagörðum en á Eggertsgötu og einnig nýrri. Líka mun dýrari.. þannig að maður verður að hugsa þetta vel í dag. Svo kemur það nottla líka til greina að fara að leigja annarsstaðar en á stúdentagörðunum.
Ég held að ég þjáist af valkvíða!!! Ég get aldrei gert upp við mig hluti, þó það sé bara hvað eigi að vera í matinn, liggur við!!!
En jæja, ég hugsa að ég fari að kíkka á frumulíffræðina núna... vúhú